05nóvember
ALLAR MYDNIR KOMNAR INNÁ
www.123.is/bjoggann hér er skellt í lás hér...
kv Aðalbjörg
25ágúst
jæja pípol...það eru komin 2 ny myndaalbum a
www.123.is/bjoggann frá Kátum dögum og svo frá Staffadjamminu i grimsey með sjallanum og Amour...
kv Aðalbjörg sem er flutt til þórshafnar...:o/
07júlí
sælir kæru landar. það sem það er alveg hrikalega langt síðan ég bloggaði seinast og ég búin að gera helling á þessum tíma, enn ég nenni ekkert að röfla um það...
enn það sem er helst að frétta er það, að ég er að fara að hætta í BYKO og ekki nóg með það heldur er ég að fara að flytja á þórshöfn í vetur...taka smá pásu í bullinu hérna á akureyri og slappa af í vetur, reyna að eignast peninga og svona já...það er ekkert víst að það takist enn það kemur í ljós, já flestir telja mig geðveika, enn það er sussum ekkert í fyrsta skipti sem ég kem með svo undarlegar ákvarðanir eins og þessa, enn verst við þetta allt saman er það samt að ég þarf að hætta í sjallanum...mér finnst það lang ömurlegast af öllu, og á eftir að sakna allra þarna óendanlega mikið enn svona er það
enn á þórshöfn er ég ekki að fara að vinna með síðra fólki,er að fara að vinna á Eyrinni hjá Nönnu og Dedda og svo verð ég í sjoppunni líka í vetur
Það sem er á döfinni er. Kátir Dagar 19-22 Júlí dagskránna er að finna www.langanesbyggd.is
síðan helgina eftir það þá er lokaparty með Dabba sem er bossinn í sjallanum, hann er að hætta núna um mánaðarmótin og sló þessu bara upp kæruleysi og bauð öllu staffinu til Grímseyjar. hann er þaðan og við siglum þangað á föstudagsmorgun ferðafélagarnir eru sko ekki af verri endanum því Ingó og Veðurguðirnir slást í för með okkur, það verður svo gaman, svo er bara versló sem verður bara vinna í sjallanum úff.. aðra helgina í ágúst eru svo fiksidagar á Dalvík, þannig að þetta verður bara eintóm hamingja á næstunni.. hehe enn já eg ætla að fara að hætta þessu, varð bara að koma nýtt blogg í nýju tölvunni minni:) enn já minni síðan á myndasíðuna sem eg var að búa til www.123.is/bjoggann og ég ætlast til þess að fá komment á sérstakar myndir sem og kvitt fyrir komuna, það er búið að taka mig ár og öld að koma þessu í verk enn ég tók einn veikindadag í þetta, enn er farinn að vinna elskurnar þannig að við heyrumst hress, við að heilsa. kv Aðalbjörg
18apríl
Jámm, ég þori nú ekki annað enn að blogga, maður er alltaf hundskammaður fyrir bloggleysi, enn já...
Seinustu helgi var ekkert djamm, var að vinna á Kvöldið er okkar í sjallnum, það var ágætt, enn venjan er sú að sulla allsvakalega í sig eftir það og djamma eftir vinnu því þetta er alltaf búið kl 02:00 enn ég ákvað að keyra eitt kvöld til tilbreytingar, og fór nú samt ekki að sofa fyrr enn 06:00 enn síðan var vinna í BYKO kl 10:00 og vá hvað það var gott að vera bara þreittur í vinnunni ekki þreittur OG Timbraður...þannig að ég er að huxum að vera bra aftur Edrú á föstudaginn

Síðan var geðveikt djamm á Laugardaginn, byrjuðum heima hjá Bryndísi og horfuð á söngvakeppnina, sem fór mjög vel, mér fannst 2 atriði standa uppúr... það var VMA og Menntaskólin við Hraðbraut... enn já síðan fórum við á Kaffi Akureyri...
Skjóttu mig, shiiitt hvað það var leiðinlegt....þá sagði ég líka hingað og ekki lengra. og ég borgaði taxa undir rassgatið á stelpunum niðreftir á 1929...hehe þær nenntu ekki að labba....og þaaað var geðveik gaman, kom heim einhverntíman um morgunin drullu timbruð og dauð úr þreitu...enn já það stefnir ekkert í spennandi helgi núna, edrú í kvöld og edrú á föstudaginn því mig langar að vera ekkert timbruð í vinnunni á laugardagsmorgun...er að vinna fyrir stelpuna sem vinnur á móti mér um helgar þannig að nú er ég 2 í röð...síðan er vinna í Sjallanum á Lau kvöld Jet Black Joe að spila, hef reyndar aldrei heyrt þá á balli, enn þetta verður ábyggilega bara fínt... enn ég ætla að hætta að röfla og reyna að þykjast vinna eikkað..;) og já ég veit, ég skal segja ykkur núna afhverju ég get ekki sett inn myndir, ég get ekki borgað fyrir áskriftina fyrir myndaalbúmið á bloggar.is út af þvi að kerfið segir að símanúmerið mitt sé ekki í notkun og bla,bla...þannig að það er verið að brasa í því að koma því í lag.... þetta er ekki leti í mér......enn þangað til næst.....
12apríl
jæja já, eru ekki allir bra blíspertir?? það er ég allavegna.
Nýkomin heim frá Ísafirði, já ég var á Ísafirði um páskan sem var reynar alveg ótrúlega gaman sko. Missti að Klúbbakvöldinu, enn Haukur var svo æðislegur hann gaf mér alla diskana A.T.O.M og diskin með öllu kvöldinu sjálfu....
Endalaust ánægð með það,
enn já ég fór með Siggu og Snæbirni með flugi á skírdag.
Fórum á Aldrei Fór Ég Suður sem er hátíð á Ísó um páskanna, það var ótrúlega gaman, vorum að vinna aðeins á hátíðinni fyrir ömmu Betu, hún er í Kiwanis klúbbnum og þau voru með veitingar til sölu og þar stóðum við vaktina.
Á föstudeginum lögðum við Íann á djammið og byrjuðum að fara á Krúsina, borguðum okkur 2000 kall inn enn vissum samt ekkert hver var að spila síðan komum við niður og já þá var Bogomil Font að spila, "dreptu mig"....gubb,gubb,gubb...sjiii hvað maðurinn er leiðinlegur, enn það var tekin hringur á barinn og svo út aftur, 2800 kalli fátækari eftir þessa hrikalegu ferð í Krúsina, eftir það hringdi ég í Atla sem ég er að vinna með þar sem ég vissi að hann væri nú i Bolungarvík og spurði hann hvar væri ball og hann sagði mér að hunksa okkur í Hnífsdal og já við fórum á ball í Hnífsdal með Bermuda....??? hef reyndar aldrei heyrt um þá hljómsveit áður enn hún var reyndar mjög góð...eftir ballið var svo trillað heim og sofið til Þrjú.....eheh agalega gott að sofa síðan var bra legið í leti mest alla páskana, enduðum á því að djamma á sunnudeginum, byrjuðum að hitta Dóra frænda hennar siggu, alveg toppnáungi, hittum þau hjá eikkerju fólki sem þau þekkja og allir að spila RISK... jey...nei ekki allveg síðan fórum við bra heim til hans og drukkum og spjölluðum við hann og gamlasettið til að verða 2 þá var trillað á Krúsina þar var einhver dj að spila og við skemmtum okkur mjöööög vel, aðeins meiri ölvun er var plönuð í upphafi, enn mjöööög gaman, get nú reyndar ekki sagt að það hafi verið eins gaman að keyra norður, vorum rétt lögð af stað þegar við sáum bíl stopp í kantinum með opið húdd og við stoppuðum náttúrulega og athuguðum með fólkið það var í góðu með það enn það kviknaði í bílnum já það kviknaði í honum...2003árg að BMW....æðislegt...get ekki sett myndinna inn því að ég get ekki sent hana úr símanum mínum enn þetta fer nú að vera komið gott í bili, og ég veit ég á eftir að setja inn myndir af sjalladjamminu ásamt 350 öðrum myndum enn ég get ekki sett inn myndir á bloggar.is og á meðan ég get það ekki þá koma engar myndir inn :(
enn þangað til næst......
04apríl
Vá. viljiði sjá, ég er bra dugleg að blogga....allir að kommenta fyrir stelpuni sem er dugleg að blogga.

Hehe nee segi svona, en já annas er allt gott að frétta hérna meginn, var allskvakalega gaman hjá mér um helgina. Árshátíð SjaLLaNs og í tilefni þess fórum við í óvissuferð á Laugardaginn seinasta, og það var byrjað uppá Skotsvæði, geðveikt allir að skjóta, og eftir það mátti byrja að fá sér í glas, og já það var sko rækilega gert..

síðan var haldið í KALDA Bruggverksmiðjuna, og þar var tekið vel á móti okkur með mikið af bjór geðveikt, og þar voru allit orðnir frekar hífaðir síðan var endað í Ytri-Vík í stóra pottinum og svo haldið í bæinn og já dóu 2 á leiðinni...um kvöldmatarleitið, já....þá hætti ég í drykkjunni í sonna 2 tíma því að ég var alveg á perunni um kvöldmatarleytið ehehehe

... síðan var trillað aftur niðrí Sjalla og borðað geðveikan mat frá Greifanum og svo fullt að skemmtiatriðum og þess má geta að ég vann vöfflugrill....til að baka vöfflur...heppinn....

já síðan eftir miðnætti var Trillað á Amour og það var bra ekkert gaman þar og síðan á Kaffi Akureyri og það var svo stappað það að þú gast ekki einu sinni skipt um skoðun þar sko, þannig að ég og Leibbi enduðum bra á Dátanum og drukkum vel þar, agalega gaman..

Þakka bra öllum fyrir frábært kvöld...
Enn já í Dag fór ég í klippingu og plokkun og litun og allt, já ég er að fara til Ísafjarðar ekki á morgun heldur hinn með Siggu vinkonu...maður verður nú að gera sig sæta fyrir Ísó ef maður skildi nú finna eikkað álitlegt kjöt þar

...hehe nee segi svona enn já ég er farinn í háttinn....
Óver end Át
27mars
Mér datt alltí einu í hug að fara að blogga svona uppúr þurru, ekki það að það sé eitthvað skemmtilegt að frétta, nema jú ég kíkkti á djammið á föstudagskvöldið með Petru á caponeá Klúbbakvöld, sko Klúbbakvöld my ass, það var hundleiðinlegt þarna.... síðan komu Herdís og Gísli í heimsókn til mín um helgina og Herdís elskan að byrja að taka bílprófið, enn já síðan var ég bara að vinna á Laugardagskvöldið í sjallanum, það var nú bara ágætlega gaman, skemmtilegt fólk og stemmari í liðinu. Sunnudagurinn fór nú bara aðalega í það að sofa út og hanga heima og gera ekki neitt, eldaði kvöldmat handa okkur betilykkjunum og síðan var stefnan tekin í Bíó og séð Wild Hogs og já ég mæli með henni, þvílík sniiiild sem þessi mynd er vá við hlógum svooo mikið, hehe, en annas er bara vinnunni og bíða eftir að kallarnir séu búnir í mat þannig að eg komist heim, er lasinn
hálsbólga og verkir í hausnum eins og hann leggur sig, eyrunum og allstaðar....
enn þetta er komið gott í bili....Bjöggann kveður í bili....
17mars
Sælar, jii hvað maður er einstaklega latur bloggari, ætlaði ekkert að blogga fyrr enn ég er búin að koma þessum 300 myndum inn sem eru í myndavelinni minni enn þar sem ég hef ekki þolinmæði í það að bíða eftir þessu slow kerfi hérna þá verður að að bíða eikkað.....
Uhh það sem er búin að vera a gera síðan í Janúa..hehe það er ég fór Suður á Sander Kleinenberg sem var reynda geðveikt og já Árshátíð BYKO sömu helgina, hún var fín nema að ég var með eikkerja pest og gat ekki verið á ballinu fór bara og borðaði þennann jaaaa...ekki góða mat
enn Björgvin frans var að skemmta og
O MÆ hann er svo fyndinn...ég hélt að fólkið dræpist úr hlátri þegar hann opnaði á sér þverrifuna...jiii enn já síðan er ég búin að gera eikkað minna svona athyglivert nema bra á filleríum með petru minni við fáum okkur annaðslagið í glas saman, já reyndar dáltið oft enn það er bra gaman, jú ég varð 19 ára 28.feb, og fór austur í 70 tugs afmæli til ömmu gömlu, það var alveg ágætt....ætla að fara að segja þetta bara gott í bili...þangað til næst....
16janúar
Hellú pípol, er nú ekki allveg að standa mig í blogginu enn ég ætlaði nú upphaflega að hafa þetta sem myndasíðu frekar enn blogg jú þar sem ég var búin að eignast myndavél, enn nei mér náttúrulega tókst að eyðileggja hana á viku

bra tíbikal ég enn annas já, Jólafríið var huggulegt, fékk frí 22 og fór heim á Þórshöfn og bjó nánast hjá Herdísi minni og Gilla um jólin, ég held að ég hafi gist eina nótt heima hjá mér,fékk ekki marga pakka enn innihaldið í þessum fáu sem ég fékk var gott,
*10.000 gjafabréf í gallerí og tvíbreiðasæng frá mömmu,pabba og tryggva
*Myndavél frá ömmu jú sem ég eyðilagði muniði..
*15.000 Gjafabréf frá Pétri
*og svo geisladisk og handklæði og komfekt og rauðvínsflösku, já sjáiði það ekki fyrir ykkur mig drekka rauðvín enn já ég skifti bra við villa bróðir ég fékk bjór og hann rauðvín, það passar frekar
enn já síðan fórum við vinkonurnar á annan í jólum Ég, Petra og Eygló á Án efa á Djamm ársins á Kúbbavöld NoRequest á 1929 og Capone og Leibbi og GretarG spiluðu back2back á 1929 og Danni og Sveinar á Capone og Þetta var svo svaðalegt kvöld, bra eitt það skemmtilegasta held ég, já síðan var brunað aftur í sveitina og tekið því bra rólega, síðan 29 frekar enn 30 fór ég aftur a Akureyri til að fara að vinna á Gamlárskvöld í Sjallanum, sem var reyndar bara gaman sko, ég var orðin pínusvekkt að hafa ákveðið að vinna enn jújú það þýddi víst ekkert að fást um það enn þótt ótrúlegt sé þá var allveg ótrúlega gaman, var allveg helvíti vel í glasi sem jú gerði kvöldið mikið skemmtilegra. Fyrstu helgina í janúar þá var Staffadjamm í sjallanum og mikið djammað og miiiikið drukkið og allveg geðveikt gaman, (hefði verið skemmtilegra að hafa þig Begga...eeeen...) þýðir ekki að fást um það enn já síðan hef ég ekkert gert meira skemmtilegt í janúar nema að ég er að fara á límingunum að þurfa að bíða eftir bumbubúarnum hennar siggu, í allvöru ég held að hann eigi eftir að fæðast með prakkarasvip, að barninu finnist geðveikt að hafa alla spennta og láta ´bíða eftir sér enn ég er að hugsum að hætta þessari vitleysu og halda áfram að púzzla....
13desember
Jæja ég nenni ekki að blogga enn ég er búin að setja inn skröns af nýjum myndum síðan um helgina;)